Van Gaal um viðbrögð Rashford: Já stjóri, þú hefur rétt fyrir þér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 09:00
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, er sérstaklega ánægður með viðhorf unglingsins Marcus Rashford sem hefur slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili með aðalliðinu. Marcus Rashford skoraði annað marka Manchester United í gær þegar liðið komst í undanúrslit enska bikarsins eftir 2-1 sigur á West Ham. „Hann er mjög einbeittur og ég dáist af honum fyrir það vegna þess að hann er enn svo ungur og það er mikið áreiti á þessa stráka í dag," sagði Louis van Gaal. „Hann er að skora svo mikilvæg mörk fyrir okkur en hann ræður vel við alla athyglina sem þessu fylgir og hann nær að halda fókus," sagði Van Gaal og ungi framherjinn tekur leiðsögn vel. „Þegar þú þarft að gagnrýna hans leik þá hefur hann sýnt að hann getur tekið gagnrýni líka. Hann svarar: Já stjóri, þú hefur rétt fyrir þér og ég þarf að gera þetta," sagði Van Gaal og bætir við: „Það er frábært hjá honum og það eru ekki margir sem taka gagnrýni svona vel," sagði Van Gaal og auðvitað þakkaði hollenski stjórinn sjálfum sér aðeins fyrir markið hans Rashford í gær. „Þetta var flott mark hjá honum. Ég var fyrir aftan hann á bekknum og sá vel sjónarhornið hans. Ég sá gatið og hornið og öskraði: Skjóttu. Það er auðvitað mun erfiðara að framkvæma það. Þetta var glæsilegt mark og glæsilegur einleikur. Hann hefur þessa hæfileika og ég vil sjá hann rekja boltann meira og skjóta," sagði Van Gaal. Marcus Rashford hefur skorað 6 mörk í 11 leikjum í öllum keppnum með aðalliði Manchester United en hann skoraði meðal annars tvö mörk í fyrsta leiknum, fyrsta deildarleiknum og fyrsta Evrópuleiknum.Marcus Rashford fagnar með félögum sínum í liði Manchester United.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira