Pellegrini segir Aguero vera besta framherjann í deildinni Anton Ingi Leifsson skrifar 17. apríl 2016 10:00 Pellegrini og Aguero glaðir á svip. vísir/getty
Sergio Aguero, framherji Manchester City, er besti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni. Þetta segir stjóri hans, Manuel Pellegrini, en Aguero skoraði sitt 99. mark í ensku úrvalsdeildinni í gær. Aguero skoraði öll mörk City þegar þeir rúlluðu yfir Chelsea, 3-0, á Stamford Bridge í gær. Enginn hefur skorað fleiri mörk í ensku úrvalsdeildinni síðan 2011 heldur en Argentínumaðurinn. „Sergio gerir gæfumuninn þegar hann spilar í hvern einasta leik, í hverri viku. Ég er viss um að hann er besti framherjinn í deildinni,” sagði Pellegrini.Sjá einnig:Aguero sá um Chelsea | Sjáðu þrennuna „Það er mjög skrýtið að Sergio hefur spilað hérna í svona mörg ár og aldrei verið besti leikmaður deildarinnar,” en Aguero hefur skorað 99 mörk fyrir Manchester City síðan í ágúst 2011. Yaya Toure byrjaði sinn fysrta leik í lengri tíma þegar hann var í byrjunarliðinu á Brúnni í dag. Enn og aftur tekur Pellegrini upp hanskann fyrir Toure, en margir segja að tími Yaya hjá City sé liðinn. „Þegar Yaya spilar ekki og við vinnum, þá segja allir að hann eigi ekki að spila meira, en við höfum spilað fullt af mikilvægum leikjum án hans sem við höfum tapað.” „Yaya heldur áfram að vera mikilvægur leikmaður fyrir okkur og hann er leikmaður sem gerir gæfumuninn,” sagði Síle-maðurinn að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Sjá meira