Newcastle bjargaði stigi í fallbaráttunni | Sjáðu mörkin 19. apríl 2016 20:30 Sergio Agüero kom City á bragðið á 14. mínútu. vísir/getty
Manchester City er svo gott sem endanlega úr leik í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar er liðið mátti sætta sig við 1-1 jafntefli við Newcastle á heimavelli. Newcastle vann að sama skapi afar dýrmætt stig í fallbaráttu deildarinnar en liðið er næstneðst, nú með 29 stig og tveimur frá öruggu sæti þegar fjórar umferði eru eftir af tímabilinu. Sergio Agüero skoraði mark City á fjórtándu mínútu en það var hans 22. mark á tímabilinu og er hann nú jafn Jamie Vardy sem næstmarkahæsti leikmaður tímabilsins, tveimur mörkum á eftir Harry Kane. Þetta var jafnframt 100. úrvalsdeildarmark Argentínumannsins snjalla en endursýningar í sjónvarpi sýndu þó að hann var rangstæður þegar hann skallaði í mark Newcastle. Vurnon Anita jafnaði svo metin fyrir Newcastle á 31. mínútu og þar við sat. City komst nálægt því að endurheimta forystuna en Karl Darlow varði vel frá bæði Jesus Navas og Kevin de Bruyne. En Newcastle fékk einnig tækifæri til að tryggja sér sigurinn undir lokin en Joe Hart, markvörður City, náði að sjá við Georginio Wijnaldum. City er nú með 61 stig í þriðja sæti ensku deildarinnar, tólf stigum á eftir toppliði Leicester. Liðið á því lítinn sem engan möguleika á Englandsmeistaratitlinum úr þessu.Sergio Agüero kom Manchester City yfir á 14. mínútu: Anita jafnaði metin fyrir Newcastle á 31. mínútu:
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Sjá meira