Gylfi hefur skorað 47 prósent marka Swansea á árinu 2016 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2016 20:33
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í gær sitt áttunda mark í þrettán deildarleikjum sínum með Swansea City á árinu 2016 og hefur skorað næstum því helming marka velska liðsins á nýju ári. Gylfi skoraði aðeins tvö mörk í nítján leikjum fyrir áramót en íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið óstöðvandi fyrir framan mark andstæðinganna á nýju ári. Frá áramótum hefur Gylfi skorað 8 af 17 mörkum Swansea í ensku úrvalsdeildinni sem gera 47 prósent marka liðsins. Gylfi var búinn að skora helming marka liðsins þegar hann minnkaði muninn í 2-1 á móti Stoke City á Britannia leikvanginum í gær. Alberto Paloschi skoraði fyrir Swansea ellefu mínútum síðar og tryggði velska liðinu 2-2 jafntefli og mikilvægt stig. Markahlutfall Gylfa lækkaði því niður í 47 prósent sem er afar há tala ekki síst þar sem Gylfi er miðjumaður. Í spilaranum hér fyrir ofan má síðan sjá þetta laglega tíunda mark Gylfa Þórs Sigurðssonar í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.Mörk Swansea City á árinu 2016: Gylfi Þór Sigurðsson 8 André Ayew 2 Alberto Paloschi 2 Ashley Williams 2 Wayne Routledge 1 Modou Barrow 1 Federico Fernández 1
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sjá meira