Webb um myndbandstæknina: Viljum ekki fjarstýrða dómara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. september 2016 12:30 Webb dæmdi bæði úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu og HM árið 2010. vísir/getty
Howard Webb, sem var einn fremsti fótboltadómari heims á sínum tíma, geldur varhug við notkun myndbandsupptaka við dómgæslu og segir hættu á því að dómurum verði fjarstýrt.Í vináttulandsleik Ítalíu og Frakklands í Bari á fimmtudaginn var myndbandsupptaka notuð í fyrsta sinn í leik á vegum FIFA. Hollendingurinn Björn Kuipers dæmdi leikinn og fékk hjálp frá aðstoðarmönnum sínum sem horfðu á leikinn í sjónvarpstrukk fyrir utan völlinn. Tilraunin þótti heppnast vel og meðal þeirra sem lýstu yfir ánægju með hvernig til tókst var Gianni Infantino, forseti FIFA, en hann er mikill stuðningsmaður þess að myndbandsupptökur séu notaðar við dómgæslu. Webb er ekki jafn hrifinn af þessari þróun og segir hætt við því að hlutverk dómara minnki. „Þegar þessi hugmynd kom fyrst fram var talað um að þetta ætti að hjálpa til við úrskurða um atvik sem dómarinn sá ekki en svo er ekki lengur,“ sagði Webb. „Afstaða FIFA er að breytast og verið er að prófa myndbandsupptökur. Að sjálfsögðu eigum við að fagna öllu sem hjálpar dómurunum að taka réttar ákvarðanir en við verðum að fara varlega. „Ef hver einasta ákvörðun er skoðuð á myndbandi verða dómarar á vellinum lítið annað en fjarstýrðir dómarar.“ Myndbandstæknin hefur þegar verið prófuð í Bandaríkjunum og fastlega má búast við því að fleiri lönd fylgi í kjölfarið. Nú síðast lýstu Spánverjar yfir áhuga á að prófa myndbandstæknina.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Fleiri fréttir Coventry - Brighton | Sækir Lampard sinn fyrsta sigur? Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Sjá meira