Chris Smalling betri en miðverðir Leicester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2016 13:45 Chris Smalling vinnur skallaeinvígi á móti Jamie Vardy hjá Leicester. Vísir/Getty
Chris Smalling, miðvörður Manchester United, hefur blómstrað undir stjórn Hollendingsins Louis van Gaal sem hefur sett mikla ábyrgð á herðar hans. Chris Smalling var á dögunum valinn besti leikmaður Manchester United á tímabilinu af öðrum leikmönnum liðsins en hann hefur spilað meira en 50 leiki fyrir United á tímabilinu. Chris Smalling hefur verið fyrirliði Manchester United þegar Wayne Rooney og Daley Blind hafa ekki verið með og hann er skiljanlega mjög ánægður með Louis van Gaal. „Nú þarf ég bara að borga honum til baka," sagði Chris Smalling í viðtali við Sky Sports og aðspurður um það traust sem hollenski knattspyrnustjórinn hefur sýnt honum í vetur. „Hann setur mikla ábyrgð á leikmennina og gefur okkur taktísk fyrirmæli ásamt hinum þjálfurunum. Þú færð þetta traust frá honum og þú veist að þú ert að fara að spila," sagði Smalling. „Hann er líka duglegur að setja sig fram fyrir liðið og það tekur pressu af okkur leikmönnunum. Það er vissulega pressa á okkur en hann er duglegur að skýla okkur fyrir henni því hann veit að við þurfum að vera með einbeitinguna á leiknum," sagði Chris Smalling. Það hefur verið mikið rætt og skrifað um frammistöðu þeirra Wes Morgan og Robert Huth í miðri vörn Englandsmeistara Leicester City en Chris Smalling hefur þó gert betur en þeir báðir. Manchester United liðið hefur nefnilega haldið hreinu í sextán leikjum með Chris Smalling í miðri vörninni sem er það mesta hjá miðverði í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Leicester-miðverðirnir Wes Morgan og Robert Huth koma í öðru sæti einum leik á eftir.Oftast haldið hreinu á tímabilinu af miðvörðum ensku úrvalsdeildarinnar: 16 - Chris Smalling, Manchester United 15 - Wes Morgan, Leicester City 15 - Robert Huth, Leicester City 14 - Laurent Koscielny, Arsenal 13 - Toby Alderweireld, Tottenham
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Sviss - Ísland | Leikur sem verður að vinnast Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Myndasyrpa: Ekkert stopp á stemningunni í Malmö Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira