Pressan náði til sumra leikmanna Tottenham og þeir frusu 26. apríl 2016 07:45 Christian Eriksen og Toby Alderweireld ganga svekktir af velli. vísir/getty
Tottenham er líklega úr leik í baráttu um enska meistaratitilinn eftir 1-1 jafntefli gegn West Bromwich Albion á útivelli í gærkvöldi. Leicester þarf nú aðeins einn sigur í síðustu þremur leikjum sínum til að verða meistari. Tottenham komst yfir í fyrri hálfleik með sjálfsmarki Craig Dawson en Dawson bætti upp fyrir mistök sín í seinni hálfleik og jafnaði metin. Spurs var betri aðilinn og hefði getað skorað fleiri mörk en allt kom fyrir ekki. Graeme Souness, sparkspekingur Sky Sports, var gestur Monday Night Football í gærkvöldi og sagði að pressan hefði einfaldlega náð til þessa unga Tottenham-liðs. „Þetta Tottenham-lið er það yngsta í úrvalsdeildinni og enginn í liðinu hefur verið nálægt því að vinna titilinn áður,“ sagði Souness. „Það leit því svo sannarlega út eins og pressan hafi náð til sumra í seinni hálfleiknum. Þetta urðu stressandi aðstæður og þeim fannst þeir þurfa annað mark.“ Souness segir að Tottenham hefði átt að vera meira yfir en 1-0 í hálfleik en í seinni hálfleiknum hafi liðið ekki verið svipur hjá sjón. „Aldrei í seinni hálfleik hefði maður sem stuðningsmaður Tottenham sagt að liðið væri líklegt til að skora eða það væri að stýra leiknum. Sumir leikmenn Tottenham einfaldlega frusu,“ sagði Graeme Souness.
Enski boltinn Tengdar fréttir West Brom gerði Leicester stóran greiða | Sjáðu mörkin Tony Pulis og lærisveinar hans í West Brom gerðu Leicester City stóran greiða þegar þeir náðu í stig gegn Tottenham í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 1-1. 25. apríl 2016 20:45 Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira
West Brom gerði Leicester stóran greiða | Sjáðu mörkin Tony Pulis og lærisveinar hans í West Brom gerðu Leicester City stóran greiða þegar þeir náðu í stig gegn Tottenham í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 1-1. 25. apríl 2016 20:45