Petrov vill fá að spila aftur fyrir Aston Villa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2016 17:30 Stiliyan Petrov. Vísir/Getty
Stiliyan Petrov, fyrrum fyrirliði Aston Villa, hefur ekkert spilað síðan árið 2013 þegar hann greindist með bráðahvítblæði, en óskar þess nú að fá að spila aftur með sínu liði. Aston Villa féll á dögunum úr ensku úrvalsdeildinni og spilar því ensku B-deildinni á næstu leiktíð. Stiliyan Petrov er orðinn 36 ára gamall en hann var búinn að leggja skóna á hilluna á meðan hann fór í gegnum krabbameinsmeðferðina. Það var fyrir þremur árum síðan en núna er Stiliyan Petrov farinn að æfa á fullu á nýjan leik. Stiliyan Petrov kom til Aston Villa frá Celtic árið 2006 og lék alls 218 leiki fyrir félagið í öllum keppnum auk þess að spila 92 landsleiki fyrir Búlgaríu. Stiliyan Petrov sagði frá þessum draumi sínum í viðtali við Birmingham Mail. „Ég er mjög spenntur. Fólk mun auðvitað koma með marga spurningar og margir munu efast," sagði Stiliyan Petrov við Birmingham Mail. „Ég er að nálgast það form sem ég var í þegar ég hætti. Við skulum bara sjá til hvernig þetta þróast. Það er í forgangi hjá mér að komast aftur að hjá Aston Villa," sagði Petrov.Aston Villa hefur staðið vel við bakið á Stiliyan Petrov.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Körfubolti Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Fleiri fréttir Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Sjá meira