Tottenham á toppnum á mörgum tölfræðilistum Óskar Ófeigur Jónson skrifar 19. apríl 2016 15:30 Leikmenn Tottenham fagna marki í gær. Vísir/Getty
Tottenham er kannski fimm stigum á eftir toppliði Leicester City þegar fjórar umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni en þeir er á toppnum á mörgum tölfræðilistum. Tottenham væri svo gott sem orðið enskur meistari ef tölfræðin fengi að ráða til um það. Tottenham-liðið er á toppnum á mörgum stöðum í tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar. Reuters hefur tekið saman frábæra stöðu Tottenham í tölfræðinni það sem af er tímabilinu. Tottenham vann 4-0 sigur á Stoke City í lokaleik 34. umferðar í gærkvöldi og minnkaði forskot Leicester niður í fimm stig þegar tólf stig eru eftir í pottinum. Harry Kane skoraði tvö mörk í leiknum og er nú með tveggja marka forystu í baráttunni um markakóngstitil deildarinnar. Tottenham hefur skorað flest mörk í deildinni (64) og er líka það lið sem hefur fengið fæst mörk á sig (25). Spurs-liðið er líka það lið sem hefur átt flest skot á mark (234), það lið sem hefur skapa flest færi (449) og þá hefur ekkert lið skorað fleiri mörk úr föstum leikatriðum (17). Mótherjar Tottenham hafa náð 132 færri skotum á mark Tottenham en leikmenn Tottenham. Markatala Tottenham er líka afar glæsileg eða 39 mörk í plús eða ellefu mörkum betri en liðið sem er með næstbestu markatöluna í deildinni sem er Manchester City. Dele Alli hefur gefið 7 stoðsendingar á Harry Kane í deildinni sem er það mesta sem einn maður hefur lagt upp fyrir einn leikmann en Mesut Ozil hefur gefið 6 stoðsendingar á Olivier Giroud og Riyad Mahrez hefur lagt upp fimm mörk fyrir Jamie Vardy. Daninn Christian Eriksen lagði upp tvö mörk í gærkvöldi og aðeins Mesut Özil hefur lagt upp fleiri mörk á tímabilinu. Eriksen hefur einnig hlaupið meira en allir miðjumenn ensku úrvalsdeildarinnar eða 12,2 km að meðaltali í leik. Knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino er búinn að búa til magnað lið á White Hart Lane og framtíðin er líka þeirra því Tottenham er með yngsta byrjunarliðið í deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira