Soldado að ganga til liðs við Villareal Kristinn Páll Teitsson skrifar 13. ágúst 2015 18:30 Óhætt er að segja að Soldado hafi ekki tekist að slá í gegn á White Hart Lane. Vísir/Getty
Roberto Soldado flaug í morgun til Spánar til þess að gangast undir læknisskoðun áður en gengið verður frá kaupum Villareal á spænska framherjanum. Snýr hann því aftur til Spánar með skottið milli lappana eftir tvö misheppnuð ár á Englandi. Miklar væntingar voru gerðar til Soldado er hann gekk til liðs við Tottenham fyrir 26 milljónir punda, á þeim tíma metfé hjá félaginu. Soldado skoraði af vítapunktinum sigurmark Tottenham í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði aðeins sex mörk á fyrsta tímabili sínu í ensku úrvalsdeildinni, þar af fjögur úr vítaspyrnum. Gekk honum heldur betur í Evrópudeildinni en hann lék alls sjö leiki það tímabilið og skoraði fimm mörk. Þrátt fyrir slaka frammistöðu á fyrsta tímabili sínu í herbúðum Tottenham fékk hann annað tækifæri á síðasta tímabili en hann missti fljótlega sæti sitt í liðinu til Harry Kane. Lék hann alls 24 leiki í ensku úrvalsdeildinni, þar af aðeins sjö í byrjunarliði Tottenham og skoraði hann aðeins eitt mark. Pochettino hefur staðfest að félagið hafi samþykkt tilboð Villareal og snýr hann því aftur til Spánar þar sem hann lék við góðan orðstír um árabil með Valencia og Getafe. Talið er að Tottenham muni bæta við sig framherja áður en félagsskiptaglugginn lokar en félagið er einnig að reyna að losna við Emmanuel Adebayor.
Enski boltinn Mest lesið Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Körfubolti „Í dag unnum við þetta eins og fjölskylda“ Íslenski boltinn „Skil ekki af hverju við erum alltaf að koma fólki á óvart“ Íslenski boltinn McTominay og Lukaku tryggðu Napoli titilinn Fótbolti „Við þurfum hjálp frá Guði“ Handbolti „Ertu galinn? Þetta var frábær fótboltaleikur“ Íslenski boltinn „Er til eitthvað sem heitir sjöundi gír?“ Handbolti „Við erum með gríðarlega sterka liðsheild“ Handbolti Uppgjörið: KR - Fram 2-3 | Byström sökkti KR-ingum sem hafa tapað þremur í röð Íslenski boltinn Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Sjá meira