Erlent

Vilja óæskilega útlendinga burt

Frumvarpið þykir of opið til túlkunar.
Frumvarpið þykir of opið til túlkunar.
Fyrir Dúmunni, Rússneska þinginu, liggur frumvarp sem hefur það að markmiði að grisja úr „óæskilega útlendinga“ eins og það er orðað í frumvarpinu.

Frumvarpið, sem kemur frá stjórnmálamönnum sem eru hliðhollir Pútín forseta, þykir afar opið til túlkunar um hvað „óæskilegur útlendingur“ sé.

Árið 2012 samþykkti Dúman frumvarp sem miðaði að því að úthýsa erlendum félagasamtökum en í fyrra var skrifstofa Norðurlandaráðs til að mynda flokkuð sem „óæskilegur erlendur aðili“ og var henni lokað í kjölfarið.

Frumvarpið sem liggur nú fyrir þinginu mun koma til með að ná til einstaklinga og fyrirtækja sem utanríkisráðuneyti Rússa telur vinna gegn hagsmunum Rússlands.

Þeir sem eru dæmdir eftir löggjöfinni geta búist við sekt upp á rúma milljón króna eða allt að sex ára fangelsisvist.

Fulltrúar mannréttindasamtaka hafa fordæmt löggjöfina og bent á að þó að einstaklingar þyki óæskilegir í augum einhverra stríði það gegn mannréttindum þeirra að vera sektaðir eða fangelsaðir fyrir veru sína í Rússlandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×