Lennon treystir á reynsluna gegn Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2015 13:00 Eiður Smári hefur spilað fjölmarga leiki gegn Liverpool á Anfield á ferlinum. vísir/getty
Neil Lennon, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, er óhræddur að nota Emile Heskey og Eið Smára Guðjohnsen þrátt fyrir framherjarnir séu samanlagt 73 ára. „Það er einhver mýta að menn séu útbrunnir þegar þeir komast á fertugsaldurinn. Það er algjört kjaftæði,“ sagði Lennon en Bolton sækir Liverpool heim í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í dag. „Ég spilaði á móti Paolo Maldini, Alessandro Costacurta, Paul Scholes og Xavi þegar þeir voru komnir yfir þrítugt. Xavi var ennþá einn besti leikmaður heims þegar hann var 32, 33 ára. „Sumir þjálfarar setja aldurinn fyrir sig en ekki ég. Ég horfi bara á hæfileika leikmannsins og hvað hann hefur fram að færa,“ sagði Lennon og bætti við að Eiður og Heskey hafi bætt Bolton-liðið síðan þeir byrjuðu að leika með því. Eiður og Heskey, sem lék um árabil með Liverpool, hafa leikið samtals 140 landsleiki og unnið flest það sem hægt er að vinna í boltanum. Þrátt fyrir það segir Lennon að þeir séu manna spenntastir fyrir leiknum á Anfield. „Ég vona að Eiður og Heskey sýni gamla takta. Þeir þekkja þessa stöðu og út á hvað þetta gengur. Þeir hlakka líklega mest til leiksins af öllum í hópnum,“ sagði Norður-Írinn. Leikur Liverpool og Bolton hefst klukkan 17:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.Heskey varð bikarmeistari með Liverpool 2001.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira