Enski boltinn

Chelsea bikarmeistari í fyrsta sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ji So-yun skoraði eina mark leiksins.
Ji So-yun skoraði eina mark leiksins. vísir/getty
Chelsea varð í dag enskur bikarmeistari í fyrsta sinn eftir 1-0 sigur á Notts County í úrslitaleik á Wembley.

Leikurinn í dag var sögulegur að því leyti að þetta var í fyrsta sinn sem úrslitaleikur kvenna fer fram á Wembley.

Hin suður-kóreska Ji So-yun skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu og tryggði Chelsea fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins.

Katie Chapman, fyrirliði Chelsea, lyfti svo bikarnum í leikslok en þetta er í níunda sinn sem hún verður bikarmeistari. Hún vann fyrsta bikartitilinn með Millwall árið 1997 þegar hún var aðeins 14 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×