QPR og Leicester með lífsnauðsynlega sigra | Þriðji sigur Everton í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 00:01 Joey Barton skoraði fjórða mark QPR í sigrinum á West Brom. vísir/getty
Everton vann sinn þriðja sigur í röð þegar liðið tók á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Phil Jagielka skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu eftir hornspyrnu en með sigrinum komst Everton upp í 11. sæti deildarinnar. Dýrlingarnir eru í því sjötta, átta stigum frá Meistaradeildarsæti. QPR vann langþráðan sigur á West Brom á útivelli, 1-4. Þetta var fyrsti sigur QPR frá því liðið vann 0-2 sigur á Sunderland 10. febrúar. Staðan var 0-3 í hálfleik en þeir Eduardo Vargas, Charlie Austin og Bobby Zamora skoruðu mörkin. Victor Anichebe minnkaði muninn í 1-3 á 58. mínútu en nær komust lærisveinar Tony Pulis ekki. Joey Barton bætti fjórða marki QPR við á 90. mínútu en sex mínútum áður fékk Youssouf Mulumbu, miðjumaður West Brom, að líta rauða spjaldið. QPR er nú aðeins einu stigi frá öruggu sæti á meðan West Brom siglir lygnan sjó í 14. sæti. Þá vann botnlið Leicester gríðarlega mikilvægan sigur á West Ham á King Power Stadium, 2-1. Esteban Cambiasso kom Leicester yfir á 12. mínútu og þremur mínútum síðar fengu heimamenn kjörið tækifæri til að komast í 2-0 en Adrián varði vítaspyrnu David Nugent. Það kom Leicester-mönnum í koll því Cheikhou Kouyaté jafnaði metin á 32. mínútu. Þannig var staðan fram á 86. mínútu þegar Andy King skoraði sigurmark Leicester og tryggði liðinu sinn fyrsta sigur síðan 10. janúar. Liðið er hins vegar enn í botnsætinu, nú fjórum stigum frá öruggu sæti.Úrslitin í dag:Arsenal 4-1 LiverpoolMan Utd 3-1 Aston VillaSwansea 3-1 Hull Everton 1-0 Southampton West Brom 1-4 QPR Leicester 2-1 West Ham
Enski boltinn Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Messi slær enn eitt metið Fótbolti Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Marcus Rashford neitar tilboði frá Sádí-Arabíu Sport „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Björn Daníel: Vonandi fæ ég tvo Múmínbolla Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Sjá meira