Lennon: Ein besta vikan á ferli Eiðs Smára Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 20:59 Eiður bjargaði stigi fyrir Bolton í dag. vísir/getty
Neil Lennon, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, segir að vikan sem senn líður undir lok sé ein sú besta á ferli Eiðs Smára Guðjohnsen. Eiður kom inn á sem varamaður í leik Bolton og Blackpool í ensku B-deildinni í dag og tryggði sínum mönnum stig þegar hann skoraði jöfnunarmark Bolton í uppbótartíma. Eiður var einnig á skotskónum þegar Ísland vann 3-0 sigur á Kasakstan í Astana fyrir viku. „Eiður er sérstakur; hann hefur átt glæsilegan feril en þessi vika er ein sú besta á ferli hans,“ sagði Lennon en Eiður lék áður með Bolton á árunum 1998-2000. „Þetta er frábær saga. Framtíðin var í lausu lofti hjá honum þegar við hittum hann í Manchester og sannfærðum hann um að koma og æfa með okkur. Hann hefur verið stórkostlegur síðan hann kom. „Hann vildi komast aftur í landsliðið, sem honum hefur tekist,“ bætti Lennon við.Eiður og kona hans, Ragnhildur Sveinsdóttir, eignuðust sitt fjórða barn á miðvikudaginn og af þeim sökum sneri Eiður ekki aftur til Bolton fyrr en í gær. Lennon segir það vera ástæðuna fyrir því að Eiður byrjaði á varamannabekknum í dag. „Hann kom svo stuttu fyrir leik að við gátum ekki látið hann byrja. En síðan kom hann inn á og skoraði mark þegar við þurftum á því að halda,“ sagði Lennon. Eiður hefur skorað fjögur mörk fyrir Bolton í 16 deildarleikjum en liðið er í 16. sæti deildarinnar með 46 stig.
Enski boltinn Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Lars sendi kveðju til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Sjá meira