Walcott: Framlína Arsenal í dag er betri en sú með Henry 2006 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2015 09:30 Theo Walcott. Vísir/Getty
Theo Walcott, enski landsliðsmaðurinn hjá Arsenal, er ánægður með framlínu liðsins í dag og hann segir hana vera betri en þá sem var hjá félaginu þegar hann kom til liðsins árið 2006. Í framlínu Arsenal í dag eru þeir Alexis Sanchez, Olivier Giroud, Danny Welbeck og Alex Oxlade-Chamberlain en fyrir níu árum voru þar Robert Pires, Freddie Ljungberg, Dennis Bergkamp, Thierry Henry og Jose Antonio Reyes. „Ég tel að framlínuhópurinn í ár sé betri en við þurfum að sanna það," sagði Theo Walcott við heimasíðu Arsenal. „Þegar ég kom til félagsins þá voru hér Pires, Ljungberg, Bergkamp, Thierry og Jose Antonio Reyes og það er enginn smá hópur líka," sagði Walcott. „Um leið og við náum að geta eitthvað meira en að vinna bara enska bikarinn þá ættum við að geta staðið upp og lýst því yfir að þetta sé besta framlínan sem Arsenal hefur átt," sagði Walcott. Walcott talaði um mikla vinnusemi Danny Welbeck og var sammála Alex Oxlade-Chamberlain sem líkti Alexis Sanchez við Duracell-kanínuna. „Ég er síðan auðvitað að koma til baka og þá má ekki gleyma því að við erum með menn eins og Aaron (Ramsay) og Jack (Wilshere) á miðjunni. Það styrkir sóknarleik liðsins enn frekar," sagði Walcott. „Nú verður þetta mikill hausverkur fyrir stjórann að velja hvaða leikmenn eiga byrja framarlega á vellinum," sagði Walcott. Theo Walcott hefur misst af nær öllu tímabilinu vegna meiðsla en hefur komið inná sem varamaður í tveimur af þremur síðustu leikjum Arsenal.
Enski boltinn Mest lesið Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Í beinni: Valur - Breiðablik | Risa leikur á Hlíðarenda Íslenski boltinn Leik lokið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Fótbolti Fleiri fréttir Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Sjá meira