Enski boltinn

Lærisveinar Gauja Þórðar standa saman: „Væri heimska að reka Monk“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Garry Monk og Alex Neil spiluðu báðir undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Barnsley.
Garry Monk og Alex Neil spiluðu báðir undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Barnsley. vísir/getty
Eins og fram kom í morgun gæti dagurinn í dag verið sá síðasti hjá hinum 36 ára gamla Garry Monk sem knattspyrnustjóri Swansea í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir að ná besta árangri í sögu Swansea í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð eru Gylfi Þór Sigurðsson og félagar nú aðeins búnir að vinna einn leik af síðustu átta og eru fimm stigum frá fallsvæði.

Monk situr í ansi heitu sæti eftir 1-0 tap gegn nýliðum Norwich um helgina, en Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, er sagður vilja fá reyndari mann til að stýra velska liðinu.

Alex Neil, 34 ára gamall knattspyrnustjóri Norwich, var líkt og Monk undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Barnsley 2003-2004 og hann kom sínum gamla liðsfélaga til varnar eftir leikinn á laugardaginn.

Guðjón Þórðarson hefur tröllatrú á þeim báðum eins og kom fram í síðustu viku og sérstaklega Garry Monk sem honum finnst vera búinn að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson gegn Norwich um helgina.vísir/getty
Hvað hefur breyst í tólf leikjum?

„Það væri heimska hjá Swansea að reka Monk. Á síðustu leiktíð náði liðið sínum besta árangri. Hvað hefur breyst síðan þá og þar til núna þegar aðeins tólf leikur eru búnir af deildinni?“ sagði Neil eftir sigur sinna manna.

Monk fór vel af stað með Swansea-liðið í vetur. Það var taplaust í fyrstu fimm leikjum tímabilsins en nú er það aðeins búið að safna fimm stigum af 24 mögulegum í deildinni í síðustu átta leikjum og er úr leik í deildabikarnum.

„Þetta er sami stjórinn sem er eflaust ekki að gera margt öðruvísi. Lið ganga bara í gegnum hæði og lægðir. Kannski eru sumir ekki í sínu besta formi og aðrir meiddist. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu,“ sagði Neil.

„Kannski þarf hann að fá ferska fætur inn í þetta. Garry veit nákvæmlega hvað þarf til. Að mínu mati verður það sorgardagur fyrir fótboltann ef hann verður rekinn eða ef menn eru einu sinni að hugsa um það.“

„Það eru aðeins tólf leikir búnir af leiktíðinni og nú þegar eru nokkrir stjórar farnir. Það sýnir bara hvernig fótboltinn er í dag,“ sagði Alex Neil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×