Mourinho 18 milljónum krónum fátækari eftir mánuðinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2015 16:15 Jose Mourinho. Vísir/Getty
Jose Mourinho mun að öllum líkindum ekki stýra liði sínu, Chelsea, þegar það mætir Stoke í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Það varð ljóst eftir að enska knattspyrnusambandið dæmdi hann í eins leiks bann fyrir framkomu sína í leik Chelsea og West Ham þann 24. október. Mourinho var þá rekinn upp í stúku eftir að hann fór á fund dómara leiksins í hálfleik. Jon Moss, dómari leiksins, mun hafa gefið honum reisupassann eftir að Mourinho neitaði að yfirgefa búningsklefa dómaranna í hálfleik. Mourinho gæti þó staðið á hliðarlínunni á laugardag ef hann ákveður að áfrýja banninu.Sjá einnig: Mourinho fékk bæði leikbann og sekt Hann var enn fremur sektaður um 40 þúsund pund vegna málsins en fyrir tæpum mánuði síðan var hann sektaður um 50 þúsund pund fyrir ummæli sín eftir að Chelsea tapaði fyrir Southampton. Það þýðir að Mourinho er nú tæpum átján milljónum krónum fátækari eftir mánuðinn en líklegt er að hann hafi litlar áhyggjur af því þessa stundina. Mourinho hefur ekki átt sjö dagana sæla á Stamford Bridge en Englandsmeistarar Chelsea eru í fimmtánda sæti deildarinnar með aðeins ellefu stig eftir jafn marga leiki.Sjá einnig: Eva hjólar í Mourinho Chelsea mætir Dynamo Kiev í Meistaradeild Evrópu annað kvöld en fullyrt hefur verið að Mourinho gæti misst starfið sitt ef vikan fer illa fyrir Mourinho og lærisveina hans hjá Chelsea. Hér fyrir neðan má sjá samantekt Sky Sports á þeim sektum sem Mourinho hefur sankað að sér síðan hann tók við Chelsea öðru sinni árið 2013.Sjá einnig: Mikel segir að leikmenn styðji MourinhoJose Mourinho has been fined £90,000 in the last month #SSNHQ pic.twitter.com/9olPup2k2C— Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) November 3, 2015
Enski boltinn Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira