Gylfi Þór gæti fengið nýjan stjóra Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2015 08:30 Garry Monk tók við Swansea í byrjun árs 2014 og hefur staðið sig mjög vel þar til núna. vísir/getty
Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea, gæti fengið uppsagnarbréf frá félaginu í dag, en enska götublaðið Daily Mirror heldur því fram að dagar Englendingsins séu taldir. Monk stóð sig frábærlega á sinni fyrstu heilu leiktíð sem stjóri Swansea á síðasta tímabili og náði besta árangri liðsins í sögu þess, en annað er uppi á teningnum núna.Sjá einnig:Guðjón þjálfaði stjóra Gylfa Þórs: Hefur burði til að komast í fremstu röð Eftir að fara taplaust í gegnum fyrstu fimm leiki tímabilsins er Swansea nú aðeins búið að vinna einn leik af síðustu átta í úrvalsdeildinni og það gegn botnliði Aston Villa. Verði Monk látinn fara var síðasti naglinn í kistuna 1-0 tap gegn nýliðum Norwich á laugardaginn.Gylfi Þór á ferðinni gegn Norwich.vísir/gettyVilja fá reyndari stjóra Gylfi Þór Sigurðsson og félagar voru einnig slegnir úr leik í deildabikarnum af Hull og hafa ekki safnað nema fimm stigum af 24 mögulegum í síðustu átta úrvalsdeildarleikjum. Ensku götublöðin halda því fram að Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, sé búinn að fá nóg og ætli sér að finna reyndari mann til að snúa við gengi Swansea. Áður hefur verið fjallað um að stjórn Swansea vildi fá reyndan mann inn í þjálfarateymið hjá Monk sem er í sínu fyrsta stjórastarfi eftir að leggja skóna á hilluna sem leikmaður fyrir rúmu ári síðan. Sagt er að Monk hafnaði þeirri beiðni frjá stjórninni, en sjálfur sagði hann ekkert til í þessum sögum þegar gegið var á hann fyrr á tímabilinu. Gylfi Þór Sigurðsson hefur ávallt talað vel um Monk sem hefur miklar mætur á íslenska landsliðsmanninum og hefur hann í byrjunarliðinu í hverjum einasta leik.
Enski boltinn Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Íslenski boltinn Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti „Engar afsakanir, Breiðablik vann bara 3-1“ Sport Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Fótbolti Fleiri fréttir Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Leicester City tapaði næstum því tólf milljörðum á einu tímabili „Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Roy Hodgson snýr óvænt aftur í boltann 78 ára gamall Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Sjá meira