Lærisveinar Gauja Þórðar standa saman: „Væri heimska að reka Monk“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2015 09:30 Garry Monk og Alex Neil spiluðu báðir undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Barnsley. vísir/getty
Eins og fram kom í morgun gæti dagurinn í dag verið sá síðasti hjá hinum 36 ára gamla Garry Monk sem knattspyrnustjóri Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Eftir að ná besta árangri í sögu Swansea í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð eru Gylfi Þór Sigurðsson og félagar nú aðeins búnir að vinna einn leik af síðustu átta og eru fimm stigum frá fallsvæði. Monk situr í ansi heitu sæti eftir 1-0 tap gegn nýliðum Norwich um helgina, en Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, er sagður vilja fá reyndari mann til að stýra velska liðinu. Alex Neil, 34 ára gamall knattspyrnustjóri Norwich, var líkt og Monk undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Barnsley 2003-2004 og hann kom sínum gamla liðsfélaga til varnar eftir leikinn á laugardaginn. Guðjón Þórðarson hefur tröllatrú á þeim báðum eins og kom fram í síðustu viku og sérstaklega Garry Monk sem honum finnst vera búinn að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni.Gylfi Þór Sigurðsson gegn Norwich um helgina.vísir/gettyHvað hefur breyst í tólf leikjum? „Það væri heimska hjá Swansea að reka Monk. Á síðustu leiktíð náði liðið sínum besta árangri. Hvað hefur breyst síðan þá og þar til núna þegar aðeins tólf leikur eru búnir af deildinni?“ sagði Neil eftir sigur sinna manna. Monk fór vel af stað með Swansea-liðið í vetur. Það var taplaust í fyrstu fimm leikjum tímabilsins en nú er það aðeins búið að safna fimm stigum af 24 mögulegum í deildinni í síðustu átta leikjum og er úr leik í deildabikarnum. „Þetta er sami stjórinn sem er eflaust ekki að gera margt öðruvísi. Lið ganga bara í gegnum hæði og lægðir. Kannski eru sumir ekki í sínu besta formi og aðrir meiddist. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu,“ sagði Neil. „Kannski þarf hann að fá ferska fætur inn í þetta. Garry veit nákvæmlega hvað þarf til. Að mínu mati verður það sorgardagur fyrir fótboltann ef hann verður rekinn eða ef menn eru einu sinni að hugsa um það.“ „Það eru aðeins tólf leikir búnir af leiktíðinni og nú þegar eru nokkrir stjórar farnir. Það sýnir bara hvernig fótboltinn er í dag,“ sagði Alex Neil.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira