Coutinho með tvö mörk í fyrsta deildarsigri Klopp | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 14:30 Liverpool er komið upp í 7. sæti deildarinnar. vísir/getty
Liverpool vann sinn fyrsta deildarleik undir stjórn Jürgen Klopp þegar liðið sótti Chelsea heim í dag. Lokatölur 1-3, Liverpool í vil.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Liverpool komst með sigrinum upp í 7. sæti deildarinnar en Chelsea er í tómu rugli í því fimmtánda. Þetta var sjötta tap Englandsmeistaranna í fyrstu 11 umferðunum en José Mourinho, knattspyrnustjóri liðsins, situr í ansi heitu sæti. Chelsea komst reyndar yfir á 4. mínútu þegar Ramires skallaði fyrirgjöf Cesar Azpilicueta í netið en síðan tók Liverpool yfir leikinn. Philippe Coutinho jafnaði metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks með laglegu marki, sem var hans fyrsta í deildinni síðan í 0-1 sigrinum á Stoke City í 1. umferðinni. Staðan var 1-1 í hálfleik og fram á 74. mínútu þegar Coutinho skoraði sitt annað mark. Það var svo varamaðurinn Christian Benteke sem gulltryggði sigur Liverpool með sínu fjórða deildarmarki í vetur. Niðurstaðan 1-3 sigur Liverpool sem er enn ósigrað undir stjórn Klopp.Chelsea 1-0 Liverpool Chelsea 1-1 Liverpool Chelsea 1-2 Liverpool Chelsea 1-3 Liverpool
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Fleiri fréttir Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Sjá meira