Messi: Rooney er einstakur leikmaður Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. september 2015 07:30 Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins. Vísir/Getty
Einn besti knattspyrnumaður heims, Lionel Messi, kom Wayne Rooney til varnar í enskum miðlum á dögunum en Rooney hefur ekki náð sér á strik í upphafi tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Sagði hann að Rooney væri einstakur leikmaður sem væri ekki hægt að bera saman við aðra. Rooney hefur átt í erfiðleikum með að koma boltanum í netið í treyju Manchester United en ef litið er framhjá þremur mörkum sem hann gerði gegn Club Brugge á dögunum hefur honum ekki tekist að skora í keppnisleik í rúma fimm mánuði. Kom síðasta mark hans í ensku úrvalsdeildinni í 3-1 sigri á Aston Villa þann 4. apríl. Rooney komst á blað með enska landsliðinu í báðum leikjum liðsins í nýafstöðnu landsleikjahléi úr tveimur vítaspyrnum en með seinna markinu komst hann upp fyrir Sir Bobby Charlton og er nú markahæsti leikmaður enska landsliðsins frá upphafi. „Hann er einstakur leikmaður sem ekki hægt er að bera saman við aðra, svona leikmaður kemur kannski einu sinni í hverri kynslóð. Hann er með ótrúlega hæfileika, hann er teknískur ásamt því að vera einn sterkasti leikmaður sem ég hef mætt og hann vinnur vel fyrir lið sitt. Sigurvilji hans gerir það að verkum að það er enginn eins og hann,“ sagði Messi. „Þetta er eins og með mig og Argentínu, að slá met yfir flesta landsleiki og mörk skiptir ekki máli ef þú vinnur ekkert og hann mun verða einbeittur að ná árangri á EM næsta sumar. Hann mun alltaf hugsa um liðið fyrst áður en hann hugsar um eigin árangur.“
Enski boltinn Mest lesið Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Fótbolti Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Sjá meira