Guardiola: Schweinsteiger var aldrei í góðu formi hjá mér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 09:00 Bastian Schweinsteiger. Vísir/Getty
Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, hefur gefið stuðningsmönnum Manchester United ástæðu til að hafa smá áhyggjur af líkamlegu ásigkomulagi þýska miðjumannsins Bastian Schweinsteiger. Hinn 31 árs gamli Bastian Schweinsteiger gerði þriggja ára samning við Manchester United í sumar eftir að enska úrvalsdeildarfélagið keypti hann á bilinu 10,6 til 14,4 milljónir punda frá Bayern München. Bastian Schweinsteiger var búinn að vera hjá Bayern München í sextán ár eða síðan að hann var aðeins fjórtán ára gamall. „Ef hann mun er ekki vera að glíma við meiðsli þá er ég algjörlega sannfærður um að hann mun standa sig mjög vel hjá Manchester United. Þetta er toppleikamaður," er haft eftir Pep Guardiola í enskum fjölmiðlum í dag. „Til allrar óhamingju, þá var hann aldrei í góðu formi hjá mér undanfarin þrjú ár," bætti Guardiola við. Schweinsteiger hefur verið að glíma við ökkla- og hnémeiðsli stóran hluta síns ferils og það var því vitað að Manchester United var að taka vissa áhættu með að kaupa hann nú þegar leikmaðurinn er kominn yfir þrítugt. Schweinsteiger tók við fyrirliðastöðu þýska landsliðsins þegar Philipp Lahm hætti eftir HM í Brasilíu 2014 en Schweinsteiger hefur spilað 111 landsleiki fyrir Þýskaland frá árinu 2004. Bastian Schweinsteiger varð þýskur meistari í áttunda sinn með Bayern síðasta vor en hann vann Meistaradeildina með félaginu 2013 og þýska bikarinn sjö sinnum. Schweinsteiger spilaði færri og færri leiki með Bayern undanfarin þrjú tímabil. Hann spilaði 45 leiki í öllum keppnum 2012-13, 36 leiki tímabilið eftir og aðeins 28 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Bastian Schweinsteiger var með 5 mörk í 20 leikjum með Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og spilaði 6 leiki í Meistaradeildinni.
Enski boltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira