Koeman sleit hásin og stjórinn gæti misst af fyrsta leik Southampton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2015 11:30 Ronald Koeman á hækjum í gær. Vísir/Getty
Southampton mætir Newcastle í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn en svo gæti farið að knattspyrnustjóri Southampton geti ekki byrjað tímabilið eins og leikmennirnir hans. Hollendingurinn Ronald Koeman varð fyrir því óláni að slíta hásin á miðvikudaginn á æfingu Southampton-liðsins fyrir Evrópudeildarleik á móti Vitesse Arnhem. Southampton vann leikinn 2-0 og sló Vitesse Arnhem þar með út 5-0 samanlagt. Það kemur í ljós í dag hverjir verða mótherjar liðsins í umspili um sæti í Evrópudeildinni. Ronald Koeman er enn í Hollandi þar sem hann mun hitta sérfræðing en ekki er ljóst hvort að hann fari í aðgerð eða ekki. Ronald Koeman tók við liði Southampton fyrir síðasta tímabil og náði frábærum árangri með liðið þótt að það hafi selt marga af sínum bestu leikmönnum frá tímabilinu á undan. Southampton náði sínum besta árangri í ensku úrvalsdeildinni (7. sæti) og tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan 2003-04 tímabilið. Ronald Koeman er orðinn 52 ára gamall en hann átti frábæran feril sem leikmaður og spilaði meðal annars í sex ár með Barcelona.An extra injury to report ahead of the game tomorrow - I've injured my Achilles' tendon! Hopefully I won't be out of action for too long!— Ronald Koeman (@RonaldKoeman) August 5, 2015
Enski boltinn Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Fleiri fréttir Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Sjá meira