Enski boltinn

Sánchez missir af fyrsta leik Arsenal í ensku úrvalsdeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sánchez skorar eitt af 25 mörkum sínum fyrir Arsenal á síðasta tímabili.
Sánchez skorar eitt af 25 mörkum sínum fyrir Arsenal á síðasta tímabili. vísir/getty
Alexis Sánchez missir af leik Arsenal gegn West Ham í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar 9. ágúst næstkomandi.

Sánchez varð Suður-Ameríkumeistari með Chile fyrir tæpum tveimur vikum og mætir ekki til æfinga hjá Arsenal fyrr en nokkrum dögum fyrir fyrsta leik.

„Hann snýr aftur til okkar 3. ágúst og það tekur um þrjár vikur að koma honum í nógu gott form,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, á blaðamannafundi í Singapúr þar sem Lundúnaliðið er í æfinga- og keppnisferð.

„Það gæti tekið hann skemmri tíma að komast aftur í leikform en hann missir af fyrsta leiknum í úrvalsdeildinni.“

Wenger staðfesti jafnframt að Danny Welbeck yrði klár í slaginn þegar tímabilið hefst en hann fór ekki með Arsenal-liðinu til Singapúr vegna hnémeiðsla.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×