Hjörvar: Allur skítur flýtur í velgengni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 14:30 Laurent Koscielny fagnar með markverðinum David Ospina. Vísir/EPA
Arsenal hefur unnið átta leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og strákarnir í Messunni ræddu spilmennsku og velgengni liðsins að undanförnu. Arsenal er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Burnley um helgina. „Ég er vanalega hrifinn af Arsenal en þetta var svona góður skyldusigur. Þetta var svona gamla góða Arsenal sem fer á útivöll og vinnur leikina án þess að vera í teljandi vandræðum," sagði Arnar Gunnlaugsson. „Liverpool vann ellefu deildarleiki í röð í fyrra og Arsenal er búið að vinna átta í röð núna. Ég sé fyrir mér Arsenal mögulega vinna rest nema kannski einn eða tvo leiki," sagði Hjörvar Hafliðason. „Þeir eru ekkert langt frá því að vera virkilega, virkilega gott lið," sagði Arnar sem nefndi sérstaklega markvörðinn David Ospina en Arsenal-liðið er búið að vinna 11 af 12 leikjum sem hann hefur spilað. „Vörnin virkar aðeins öruggari með hann og þeir fá á sig færri mörk," sagði Arnar. „Ég er alveg sammála þér en manstu það sem Willum talaði oft um að það flýtur allur skítur í velgengni," sagði Hjörvar og uppskar hlátur frá bæði Arnari og Ríkharð Guðnasyni sem stýrði þættinum í fjarveru Guðmundar Benediktssonar. „Ekki vera að hlæja að því. Hann talaði oft um þetta," sagði Hjörvar en það má sjá alla umræðu þeirra um Arsenal í myndbandinu hér fyrir neðan.
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Sjá meira