Hjörvar: Þetta er bara væl í Mourinho Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. febrúar 2015 13:04
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur farið mikinn í enskum fjölmiðlum eftir jafnteflið við Burnley um helgina. Nemanja Matic fékk að líta rauða spjaldið í leiknum fyrir að bregðast illa við ljótri tæklingu Ashley Barnes. Mourinho kvartaði undan þeim og fleiri atvikum í leiknum.Sjá einnig: Chelsea áfrýjar brottvísun Matic Málið var til umfjöllunar í Messunni í gær með þeim Guðmundi Benediktssyni og Hjörvari Hafliðasyni en gestur þeirra var Gunnleifur Gunnleifsson.Matic var sótillur eftir tæklingu Ashley Barnes og fékk umsvifalaust rautt spjald.Vísir/Getty„Mér finnst að þetta sé bara væl í Mourinho. Hann er búinn að væla mikið að undanförnu - alveg frá upphafi þessa árs. Talar um að það sé herferð gegn Chelsea,“ sagði Hjörvar en umræðuna alla má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan. Mourinho var gestur í þættinum Goals on Sunday á Sky Sports á sunnudag þar sem hann ræddi þessi og önnur mál sem snúa að Chelsea ítarlega. Guðmundur bendir á þá staðreynd að viðtalið við Mourinho hafi ekkert verið auglýst og þeir eru sammála um að stjórinn hafi sjálfur hringt inn og bókað sig í þáttinn. En Hjörvar sagði að Mourinho hafi áður sagt öðrum knattspyrnustjórum að hætta að kvarta undan grófum tæklingum. „Þegar John Obi Mikel tók grjótharða tæklingu á leikmann Arsenal bað Mourinho Arsene Wenger um að hætta að væla - þetta væri íþrótt fyrir karlmenn.“ „En núna er hann orðinn mjög viðkvæmur og það má ekkert grast,“ sagði Hjörvar.Sjá einnig: Matic fékk rautt þegar Chelsea og Burnley skildu jöfn Gunnleifur tók í svipaðan streng og sagði að vitaskuld væri engin herferð gegn Chelsea hjá dómarastéttinni. „Hverju er hann að reyna að áorka með þessu. Er þetta gott fyrir leikmenn hans eða liðið?“ spyr Gunnleifur. „Kannski er hann að búa til einingu innan Chelsea sem miðar að því að þeir standi einir saman gegn öllum heiminum,“ segir Hjörvar.
Enski boltinn Mest lesið Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum Íslenski boltinn Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Íslenski boltinn „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Íslenski boltinn „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn