Hodgson: Kane verðskuldar sæti í landsliðinu - Rooney er ekki miðjumaður Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. febrúar 2015 12:30 Roy Hodgson. vísir/getty
Það virðist nokkuð ljóst að Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, ætlar að velja framherjann unga hjá Tottenham, Harry Kane, í næsta landsliðshóp. England mætir Litháen og Ítalíu í undankeppni EM 2016 í næsta mánuði á sama tíma og strákarnir okkar ferðast til Kasakstan og spila þar mikilvægan leik. Kane, sem er 21 árs gamall, er búinn að skora 23 mörk í 25 leikjum á leiktíðinni, en Hodgson segir hann hafa allt sem framherji þarf að hafa. „Kane verðskuldar svo sannarlega sæti í hópnum,“ segir Hodgson í viðtali við BBC. „Er hann verðugur sætisins eins og Rooney, Welbeck og Sturridge? Það er eitthvað sem hann þarf að sanna. En ef ég gef honum ekki tækifæri getur hann ekki sannað sig.“ „Ef maður getur verið stjarna hjá toppliði eins og Tottenham þegar maður er 21 árs gamal þá er maður að standa sig nokkuð vel.“ Wayne Rooney, landsliðsfyrirliði Englands, hefur ekki skorað mikið að undanförnu enda spilað mikið á miðjunni hjá sínu liði. Hann er aftur á móti búinn að skora sex mörk í síðustu sex leikjum fyrir landsliðið. „Hans besta staða er ekkert endilega á miðjunni og ég ætla mér ekki að nota hann þar á næstunni. En hver veit? Aldrei segja aldrei,“ segir Roy Hodgson. „Hann er markaskorari og þú vilt alltaf hafa þá í stöðu til að skora mörk.“
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Uppgjör: Silkeborg-KA 1-1 | Töfrar Hallgríms tryggðu KA frábær úrslit Fótbolti Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Handbolti Banna trans konum að keppa á Ólympíuleikunum Sport Í beinni: Þýskaland - Spánn | Hvort mætir Englendingum? Fótbolti Þorsteinn líklega áfram með landsliðið Fótbolti Ballið ekki búið hjá Breiðabliki Fótbolti „Meiri áhrif frá Arnari Gunnlaugssyni heldur en Svíþjóð“ Fótbolti Hetja Englands á EM: „Fyrir fjórum árum var ég krakki að kasta boltum til þeirra“ Fótbolti Yfirlýsing frá KSÍ: Þrengt að þjóðarleikvanginum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Sjá meira