Fyrsta mark ársins kom eftir aðeins 106 sekúndur | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2015 12:57 Ryan Shawcross skorar hér markið. Vísir/Getty
Ryan Shawcross var ekki lengi að opna markareikning sinn á nýju ár en hann skoraði fyrsta mark ársins 2015 í ensku úrvalsdeildinni. Fyrirliði Stoke er ekki þekktur fyrir að skora mikið af mörkum en hver veit nema að þetta breytist á nýju ári. Ryan Shawcross skoraði aðeins 1 mark í 19 leikjum í úrvalsdeildinni fyrir áramót en hann kom Stoke City í 1-0 á móti Manchester United eftir aðeins 1 mínútu og 46 sekúndur. Ryan Shawcross var þá á réttum stað í markteignum eftir hornspyrnu Marko Arnautovic og skalla Peter Crouch. Hann sendi boltann í marknetið framhjá markverðinum David de Gea og Robin van Persie sem stóð bjargarlaus á marklínunni. Það er hægt að sjá markið hér fyrir neðan og svo er einnig hægt að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á Vísi. Leikur Stoke City og Manchester United er fyrsti leikur dagsins af tíu í ensku úrvalsdeildinni en öll tuttugu lið deildarinnar spila í dag. Eftir lokaleik dagsins, á milli Tottenham og Chelsea, verða allir leikir dagsins gerðir upp í markaþætti á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira