Eiður Smári: Góð tilfinning að sjá boltann í netinu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 11. janúar 2015 09:00 Eiður Smári vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark sitt í 14 ár fyrir Bolton þegar hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli gegn Leeds í gær. Eiður var tekinn í viðtal við heimasíðu Bolton eftir leikinn og var að sjálfsögðu hæst ánægður með markið sem hann skoraði úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. „Það er frábært að skora og jafna metin en þetta hefði verið mun ljúfara en við hefðum tekið stigin þrjú. Um það snýst þetta,“ sagði Eiður Smári í viðtalinu sem má sjá hér að neðan. „Það var góð tilfinning að sjá boltann í netinu,“ sagði Eiður Smári sem segist hafa tekið þó nokkur víti á sínum ferli. „Ég treysti hæfileikum mínum til að taka víti. Er óttalaus í raun. „Úrslitin eru vonbrigði því þetta var tækifæri fyrir okkur til að komast á sigurbraut á ný, sérstaklega hér á heimavelli. Tilfinningin í búningsklefanum er að við getum leikið betur en við gerðum. „Við gleymdum okkur í baráttunni og slagsmálunum í stað þess að setja boltann á jörðina og spila. „Án þess að ég vilji afsaka þetta þá voru aðstæður ekki hinar bestu. Það var rok og völlurinn var þurr. Það var erfitt að finna réttan takt í spilið. Við vitum að við getum betur,“ sagði Eiður Smári. „Við byrjðum leikinn ekki nógu vel og þegar það gerist þá er manni refsað,“ sagði Eiður sem vildi ekki tjá sig um vítin tvö sem mörkin voru skoruð úr en Neil Lennon þjálfari Bolton sagði í viðtali í gær að bæði vítin væru gjöf. Allt viðtalið má sjá hér að neðan en Eiður Smári talar meðal annars um hve ánægður hann er að vera kominn aftur til Bolton.
Enski boltinn Mest lesið Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Þetta var bara út um allt“ Fótbolti Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans Fótbolti FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Fótbolti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira