Enski boltinn

Arsenal og Hull fá bæði 25 þúsund miða á Wembley

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lukasz Fabianski var hetja Arsenal-liðsins í vítakeppninni.
Lukasz Fabianski var hetja Arsenal-liðsins í vítakeppninni. Vísir/Getty
Arsenal og Hull City tryggðu sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins um helgina og mætast þar með á Wembley 17. maí næstkomandi.

Enska knattspyrnusambandið gaf það út að bæði félögin fái 25 þúsund miða á leikinn fyrir stuðningsmenn sína.

Arsenal og Hull City munu sjálf selja stuðningsmönnum sína þessa 25 þúsund miða en þeir munu kosta 45, 65, 85 og 115 pund. Dýrasti miðinn er því á tæpar 22 þúsund krónur en sá ódýrasti er á um 8400 krónur. Miðaverðið hefur ekkert hækkað undanfarin þrjú ár.

Wembley-leikvangurinn tekur 90 þúsund manns í sæti og það má því búast við að stuðningsmenn félaganna reyni líka að krækja í eitthvað af þeim 40 þúsund miðum sem standa eftir.

Nú er að sjá hvort einhverjir íslenskir knattspyrnuáhugamenn ætli að skella sér til London í næsta mánuði.

Úrslitaleikur Arsenal og Hull City hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma laugardaginn 17. maí. Arsenal reynir þar að vinna sinn fyrsta titil síðan liðið vann enska bikarinn 2005 en Hull er komið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik frá upphafi.




Tengdar fréttir

Fabianski varði Arsenal í bikarúrslit

Arsenal er komið í úrslit ensku bikarkeppninnar eftir dramatískan sigur á bikarmeisturum Wigan eftir vítaspyrnukeppni. Draumur Arsenal um langþráðan titil lifir því enn.

Hull City í fyrsta sinn í bikarúrslit

Hull City komst í dag í fyrsta sinn í sögu félagsins í úrslit FA bikarsins eftir fjörugan 5-3 sigur á Sheffield United á Wembley. Það verður því Hull sem mætir Arsenal í úrslitunum en leikurinn fer fram þann 17. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×