Van Persie: Ferguson sagðist ætla að vera áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2014 11:42 Van Persie vann sinn eina Englandsmeistaratitil með Manchester United vorið 2013. Vísir/Getty
Robin van Persie segir að Sir Alex Ferguson hafi tjáð honum að hann yrði áfram við stjórnvölinn hjá Manchester United næstu þrjú árin, innan við ári áður en hann steig frá borði eftir 26 ára starf hjá félaginu. Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður United, greindi nýverið frá því að brotthvarf Ferguson hafði fengið hvað mest á Hollendinginn sem kom frá Arsenal sumarið 2012. Van Persie staðfesti þetta í samtali við hollenska fjölmiðla. „Rio er frábær náungi. Hann talar mikið en það er sannleikskorn í því sem hann sagði. „Ég kom til United að hluta til vegna Ferguson - eða Sir Alex - og hann sagði mér að hann myndi stýra liðinu næstu þrjú árin. Ég var hrifinn af hans nálgun. „Á einum tímapunkti vorum við 18 stigum á undan Manchester City, en töpuðum heima fyrir þeim, 2-1. Við vorum samt enn með 15 stiga forystu, en Sir Alex var brjálaður. Þá rann það upp fyrir mér: hann er sigurvegari,“ sagði van Persie sem bætti við hann þyrfti að spila betur en hann hefur gert til þessa á leiktíðinni. Manchester United tekur á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:00 í dag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti „Við áttum þetta skilið“ Handbolti Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Fótbolti Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Fleiri fréttir Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Sjá meira