Stoke fær Bojan Krkic frá Barcelona Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. júlí 2014 17:44 Bojan var í láni hjá Ajax á síðustu leiktíð. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Stoke gekk í dag frá fjögurra ára samning við spænska framherjann Bojan Krkic en Stoke kaupir hann frá Barcelona fyrir óuppgefna upphæð Bojan er uppalinn hjá Barcelona og kom upp í gegnum hina virtu La Masia-akademíu Börsunga. Hann spilaði fyrsta leikinn sinn fyrir Katalóníurisann aðeins 17 ára gamall. Hann þótti mikið efni og skoraði 26 mörk í 104 deildarleikjum fyrir Barcelona frá 2007-2011, en var svo seldur til Roma. Þar spilaði hann eina leiktíð, en var svo lánaður til AC Milan tímabilið 2012/2013. Barcelona ákvað að nýta sér ákvæði í samningi hans síðasta sumar og kaupa leikmanninn til baka fyrir 13 milljónir evra. Hann spilaði þó ekki leik fyrir Börsunga heldur var hann lánaður til Kolbeins Sigþórssonar og félaga í Ajax. Bojan skoraði fjögur deildarmörk í 24 leikjum er Ajax varð meistari í Hollandi fjórða árið í röð. Luis Enríque, nýr þjálfari Barcelona, vill þó ekki halda honum hjá félaginu og er Stoke nýr áfangastaður þessa 23 ára gamla leikmanns. „Kaupin á Bojan auk hinna sem við höfum fengið í sumar undirstrikar þær framfarir sem við höfum tekið sem félag,“ segir Tony Scholes, framkvæmdastjóri Stoke á heimasíðu félagsins.
Enski boltinn Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Sport Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sjá meira