Erlent

Fylgjast með stríði handan landamæranna

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Íbúar í Tyrklandi fylgdust með átökum rétt handan landamæranna, í sýrlenska bænum Kobani.
Íbúar í Tyrklandi fylgdust með átökum rétt handan landamæranna, í sýrlenska bænum Kobani. Vísir/AP
Harðir bardagar geisuðu í gær í sýrlenska bænum Kobani, rétt við landamæri Tyrklands. Vígasveitir Íslamska ríkisins herja þar á Kúrda, sem flestir hverjir hafa þó flúið frá bænum yfir til Tyrklands.

Liðsmenn Íslamska ríkisins eru þungvopnaðir, með öflug vopn í sínum fórum sem þeir hafa stolið frá sýrlenska hernum. Kúrdarnir í Kobani standa verr að vígi, með smærri vopn á borð við riffla og litlar sprengjur sem þeir notuðu til að leggja gildrur.

Kúrdar hafa sakað tyrknesk stjórnvöld um aðgerðarleysi, en loftárásir Bandaríkjanna og fleiri ríkja hafa til þessa ekki dugað til að stöðva sókn Íslamska ríkisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×