Erlent

Óvænt úrslit í Brasilíu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Aecio Neves tekst á við Dilmu Roussef, núverandi forseta, í seinni umferð forsetakosninganna þann 26. þessa mánaðar.
Aecio Neves tekst á við Dilmu Roussef, núverandi forseta, í seinni umferð forsetakosninganna þann 26. þessa mánaðar. Nordicphotos/AFP
Dilma Roussef fékk á endanum flest atkvæði í forsetakosningunum í Brasilíu, þrátt fyrir linnulítil mótmæli gegn henni megnið af árinu.

Hún getur þó ekki gengið að því vísu að fá að stjórna eitt kjörtímabil í viðbót, því ekki fékk hún meira en helming atkvæða og þarf því að mæta Aecio Neves í seinni umferð forsetakosninganna, sem haldnar verða 26. október.

Roussef, sem hefur verið forseti síðan 2011 fyrir hönd Verkamannaflokksins, fékk 42 prósent atkvæða en Neves, sem er leiðtogi Sósíaldemókrata, hlaut 36 prósent. Í þriðja sæti lenti svo Marina Silva, sem lengi vel þótti líkleg til sigurs í kosningunum.

Úrslitin á sunnudag urðu því harla óvænt, en ýmsar óvæntar vendingar urðu í kosningabaráttunni á síðustu vikum. Mest munaði þar um að upphaflegur frambjóðandi Sósíalistaflokksins fórst í flugslysi, þannig að Neves varð að taka við keflinu.

Sósíalistaflokkurinn og Verkamannaflokkurinn eru tveir stærstu stjórnmálaflokkar Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×