Enski boltinn

Özil faldi meiðslin sín fyrir Wenger

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mesut Özil
Mesut Özil Vísir/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur tjáð sig um meiðsli þýska landsliðsmannsins Mesut Özil sem getur ekki spilað með Arsenal-liðinu næstu sex vikurnar.

Wenger þótti ástæða til að svara þeirri gagnrýni að hann hafi vitað um meiðsli Özil og látið hann spila meiddan. Wenger sagði hinsvegar að Özil hafi ekki sagt honum frá smellnum í hnénu fyrr en hann hafi farið í myndatökuna.

„Ég sagði honum (Özil) að láta mig strax vita ef honum liði ekki vel og ég tæki hann þá útaf," sagði Arsene Wenger. Mesut Özil spilaði allan leikinn á móti Chelsea sem Arsenal tapaði 0-2.

„Hann sagði mér ekkert frá þessu í leiknum og ég vissi ekkert um þetta," sagði Wenger og bætti við: „Í hálfleik sagði sjúkraþjálfarinn mér frá því að Özil væri sem smá verk í hnénu en að það væri ekkert alvarlegt og að hann vildi spila áfram," sagði Wenger.

„Hann sagðist vera klár og ég var með hann inná allan tímann því okkur vantaði að skora mörk og hann er leikmaður sem getur gefið síðustu sendinguna," sagði Wenger.

„Hann fór síðan til Þýskalands og í byrjun héldu þeir að þetta væri ekkert alvarlegt. Hann átti að æfa á miðvikudagsmorguninn en þá sagðist hann ekki geta æft. Hann var þá sendur í myndatöku þar sem kom í ljós að meiðslin voru alvarleg," sagði Wenger.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×