Southgate má taka Wilshere, Sterling, Jones, Uxann og alla hina á EM Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. nóvember 2014 08:00 Arsenal-mennirnir Jack Wilshere og Alex Oxlade-Chamberlain (The Ox) gætu farið til Tékklands. vísir/getty
Gareth Southgate, þjálfari U21 árs landsliðs Englands, mætir mögulega með eitt reyndasta og sterkasta U21 árs lið síðari ára á Evrópumótið í Tékklandi næsta sumar. Roy Hodgson, þjálfari A-landsliðs Englands, er í svo góðri stöðu eftir fjóra sigra í röð í undankeppni EM 2016 að hann ætlar að leyfa Southgate að velja sér menn til að taka með til Tékklands. England spilar vináttuleik við Írland 7. júní og leik í undankeppninni gegn Slóveníu ytra nokkrum dögum síðar. Southgate og félagar hefja leik í Tékklandi 17. júní, en undirbúningurinn hefst fyrr en það.Gareth Southgate.vísir/getty„Þetta er mjög einfalt: Gareth Southgate velur sinn hóp og svo vel ég minn. Ég tek bara það sem verður eftir. Þetta verður ekki einfaldara. Ég er búinn að segja honum að hann megi velja hvaða leikmann sem er sem er gjaldgengur í U21 árs liðið og ég tek rest,“ segir Roy Hodgson. Byrjunarlið enska U21 árs landsliðsins gæti verið ógnarsterkt og stútfullt af strákum með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og B-deildinni. Leikmenn á borð við Phil Jones, Luke Shaw, Jack Wilshere, Alex Oxlade-Chamberlain, Ross Barkley, Raheem Sterling og markahæsti Englendingurinn í úrvalsdeildinni, Saido Berahino, eru allir gjaldgengir í U21 árs liðið í sumar. Svo eru fleiri minni spámenn sem hafa þó spilað reglulega í nokkur ár eins og Derby-mennirnir Will Hughes og markvörðurinn Jack Butland að ógleymdum Southamton-manninum James Ward-Prowse. Þó Hodgson sé búinn að gefa Southgate grænt ljós á að velja hvern þann sem hann vill á landsliðsþjálfarinn eftir að taka slaginn við forráðamenn liðanna sem leikmennirnir spila fyrir, en óvíst er hvort allir fái leyfi frá sínu félagsliði til að taka þátt í mótinu. Hér að neðan má sjá hvernig Daily Star stillir upp mögulegu byrjunarlið Englands á EM U21 árs í Tékkland í sumar.mynd/daily star
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira