Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sindri Sverrisson skrifar 5. september 2026 09:33 Jakob Ingebrigtsen var afar kokhraustur þrátt fyrir að hafa ekki náð verðlaunasæti í gær. Getty/Artur Widak Hlaupakappinn Jakob Ingebrigtsen hraunaði yfir keppinauta sína eftir að hafa tapað fyrir þeim í 1.500 metra hlaupi á Demantamótinu í Brussel í gærkvöld.
Ingebrigtsen varð Evrópumeistari í 5.000 metra hlaupi í ágúst en er engu að síður enn að ná upp fullum styrk eftir að hafa farið í aðgerð vegna hásinarmeiðsla síðasta vetur. Hann endaði í 4. sæti í 1.500 metra hlaupinu í gær, eftir að hafa leitt hlaupið lengst af en misst þrjá hlaupara fram úr sér á lokasprettinum. Í stað þess að óska tvítuga Ástralanum Cameron Myers til hamingju með sigurinn, eða þeim Phanuel Koech frá Keníu og Ethan Strand frá Bandaríkjunum til hamingju með sín verðlaun, lét hann þá heyra það fyrir gunguskap í gegnum allt hlaupið. „Allur hópurinn skíthræddur“ „Fjandinn hafi það, hvaða lúsera er ég að keppa við? Ég tapa, ég er ekki nógu góður. Ég geri heiðarlega tilraun og hleyp til að vinna, en ég er ekki nógu sterkur. Þannig er þetta svolítið núna, en þvílíkur andskotans lúserahópur,“ sagði hinn 25 ára gamli Ingebrigtsen reiður í viðtali við norska ríkismiðilinn NRK. „Nei, þeir sitja bara og bíða og eru skíthræddir allur hópurinn. Ég hlakka svo geðveikt til að koma aftur eftir nokkra mánuði. Þá mun ég hlaupa þá alla í spað,“ sagði Ingebrigtsen við NRK. Hann lét líka móðan mása í fleiri miðlum. “I was racing against a bunch of cowards.” After placing fourth in the Diamond League 1500m, Jakob Ingebrigtsen had some choice words for others in the field 🗣️Ingebrigtsen clocked a season’s best of 3:30.52 in Brussels ⚡️📹 @jasminecollett_ pic.twitter.com/9EUnA2wd4d— AW (@AthleticsWeekly) September 4, 2026 Ingebrigtsen ræður vissulega engu um það hvaða tækni keppinautar hans nota í hlaupi en fannst ansi dapurt að horfa upp á aðferðir þeirra: „Getustigið er eins og það er, en mér finnst gaman ef fólk skorar á mig þegar ég er fremstur. Að fólk geri heiðarlega tilraun og gefi í, en það var ekki vottur af því. Nú get ég ekki talað sjálfan mig upp akkúrat í dag, en Jesús minn, þessi hópur. Hérinn [innsk.: hlaupari sem fer fremstur til að auka hraða hlaupsins] vinnur skítlélega vinnu fyrir mig. Hinir eru miklu betri en ég akkúrat núna, en Guð minn góður. Svo koma þeir einhvern veginn þegar 50 metrar eru eftir,“ hélt Ingebrigtsen áfram pirraður. „Þá get ég hlaupið hringi í kringum þá“ Hann er staðráðinn í að komast í sitt allra besta form og láta menn finna fyrir því áður en langt um líður. „Það er ekkert sem hvetur mig meira en að hlaupa á móti þessum hóp hér og sjá að; Ef ég bara geri það sem ég á að gera og næ að gera það sem ég á að gera, skerpi mig og tek mig saman – þá get ég hlaupið hringi í kringum þá fjandinn hafi það.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sjá meira