Hodgson: Metin halda Rooney hungruðum Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. nóvember 2014 13:30 Wayne Rooney fagnar 46. landsliðsmarkinu. vísir/getty
Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, er orðinn þriðji markahæsti leikmaðurinn í sögu enska landsliðsins eftir að skora tvö mörk í 3-1 útisigri gegn Skotlandi í gærkvöldi. Rooney er búinn að skora 46 mörk í 101 landsleik, tveimur mörkum minna en Gary Lineker sem skoraði 48 mörk í 80 leikjum. Hann vantar þrjú mörk til að komast fram úr Lineker og fjögur mörk til að verða sá markahæsti frá upphafi. Sir Bobby Charlton trónir enn efstur á markalistanum, en hann skoraði 49 mörk í 106 leikjum fyrir enska landsliðið á tólf ára landsliðsferli. Rooney gæti lokið landsliðsferlinum sem marka- og leikjahæsti leikmaður Englands frá upphafi, en leikurinn í gær var númer 101 hjá honum fyrir landsliðið. Hann er í níunda sæti yfir leikjahæstu menn Englands frá upphafi, 24 leikjum á eftir markverðinum Peter Shilton sem varði mark landsliðsins í 20 ár frá 1970-1990. Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, vill að fyrirliðinn stefni að því að bæta öll þessi met. „Ef þú spyrð mig þá ætti það að vera öllum mikilvægt að slá landsliðsmet. Svona met eru mikilvæg. Það hlýtur að vera gaman fyrir Rooney að hugsa þannig. Ef hann heldur svona áfram verður hann efstur á listanum,“ sagði Hodgson eftir sigurinn í gærkvöldi. „Hann getur líka orðið leikjahæstur og ef hann ætlar að ná því meti verður hann að halda sér í formi og spila í fleiri ár,“ sagði Roy Hodgson.
Enski boltinn Tengdar fréttir Rooney með tvö í sigri á Skotum - Írar burstuðu Bandaríkjamenn Wayne Rooney skoraði tvö mörk fyrir enska landsliðið í 3-1 sigri á nágrönnum sínum í Skotlandi í vináttulandsleik á Celtic Park í Glasgow í kvöld. Írar unnu á sama tíma 4-1 stórsigur á Bandaríkjunum. 18. nóvember 2014 21:57 Rooney: Mjög sérstakt kvöld fyrir mig Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins, var kátur eftir 3-1 sigur á Skotum í vináttulandsleik í Glasgow í kvöld en hann skoraði tvö mörk í leiknum og er þar með kominn með 46 mörk fyrir enska landsliðið. 18. nóvember 2014 22:24 Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Rooney með tvö í sigri á Skotum - Írar burstuðu Bandaríkjamenn Wayne Rooney skoraði tvö mörk fyrir enska landsliðið í 3-1 sigri á nágrönnum sínum í Skotlandi í vináttulandsleik á Celtic Park í Glasgow í kvöld. Írar unnu á sama tíma 4-1 stórsigur á Bandaríkjunum. 18. nóvember 2014 21:57
Rooney: Mjög sérstakt kvöld fyrir mig Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins, var kátur eftir 3-1 sigur á Skotum í vináttulandsleik í Glasgow í kvöld en hann skoraði tvö mörk í leiknum og er þar með kominn með 46 mörk fyrir enska landsliðið. 18. nóvember 2014 22:24