Van Gaal horfði á Nani meiða Di María Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. nóvember 2014 08:00 Van Gaal var eflaust ekkert sérstaklega sáttur með Nani. vísir/getty
Ángel Di María gæti bæst á meiðslalista Manchester United, en hann þurfti að fara í myndatöku eftir vináttulandsleik Portúgals og Argentínu á Old Trafford í gærkvöldi. Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, var í stúkunni og horfði upp á 59,7 milljóna punda manninn vera sparkaðan niður af Nani, öðrum leikmanni Manchester United, sem er á láni hjá Sporting í Portúgal. Di María bar sig illa eftir atvikið sem kom upp á 18. mínútu og var utan vallar í nokkrar mínútur eftir það. Gerardo Martino, þjálfari Argentínu, tók hann þó ekki af velli fyrr en eftir 60 mínútur og setti Carlos Tévez, fyrrverandi leikmann United, inn á. „Við höldum að þetta sé ekkert alvarlegt. Þetta var frekar fast spark og það kom smá skurður. Við sendum Di María í röntgenmyndatöku og erum að skoða myndirnar,“ sagði Gerardo Martino eftir leik. Sjálfur var Di María hress á Twitter eftir leik og skrifaði: „Þetta var bara högg. Vonandi bólgnar þetta ekki meira svo ég geti spilað um helgina.“ Það yrði mikið áfall fyrir Manchester United að missa Di María í meiðsli en liðið á fyrir höndum erfiðan leik gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á Emirates-vellinum í Lundúnum á laugardaginn. United-liðið er í miklum meiðslavandræðum, en frá eru leikmenn á borð við Phil Jones, Marcos Rojo, Daley Blind, Ander Herrera, Radamel Falcao og Jonny Evans.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira