Mirallas: Januzaj á ekki að fara með til Brasilíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2014 11:47 Kevin Mirallas fagnar marki sínu gegn Manchester United um síðustu helgi. Vísir/Getty
Ungstirnið Adnan Januzaj, leikmaður Manchester United, gaf nýlega kost á sér í belgíska landsliðið eftir miklar vangaveltur um hvaða landslið hans hyggðist spila fyrir í framtíðinni. Januzaj, sem er fæddur í Belgíu, átti einnig möguleika á að spila fyrir landslið Albaníu, Kosovo, Serbíu, Tyrklands og Englands. Belgíski landsliðsmaðurinn Kevin Mirallas kveðst ánægður með val Januzaj, en telur jafnframt að hann eigi ekki að vera í belgíska hópnum sem fer á HM í Brasilíu í sumar. "Hann var undir mikilli pressu að ákveða sig, og það er gott fyrir Belgíu að hann skyldi velja landsliðið, því hann er góður leikmaður," sagði Mirallas, sem hefur leikið 43 landsleiki fyrir Belgíu og skorað níu mörk. "En ég tel að hann eigi ekki að fara til Brasilíu. Það væri ekki sanngjarnt að skilja annan góðan leikmann eftir heima fyrir einhvern sem þekkir ekki leikmannahópinn og hefur ekki spilað mikið fyrir félagslið sitt að undanförnu." "Það er ekki eins og við séum á flæðiskeri staddir með sóknarleikmenn. Það eru margir góðir leikmenn í hans stöðu til staðar í belgíska landsliðinu, svo það verður erfitt fyrir hann að komast að," sagði Mirallas, sem mun missa af þeim fjórum leikjum sem Everton á eftir að spila í ensku úrvalsdeildinni. Þó er talið að hann muni verða tilbúinn í slaginn þegar HM hefst. Belgía leikur í riðli með Alsír, Rússlandi og S-Kóreu á HM í sumar.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Sjá meira