Enski boltinn

Giggs og félagar töpuðu fyrir Salford

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Byrjunarlið úrvalsliðs '92-árgangsins.
Byrjunarlið úrvalsliðs '92-árgangsins. Vísir/Getty
Úrvalslið hins svokallaða '92 árgangs tapaði fyrir Salford City með fimm mörkum gegn einu í æfingaleik í gærkvöldi. Ryan Giggs skoraði eina mark úrvalsliðsins úr vítaspyrnu.

Giggs, Paul Scholes, Nicky Butt og Gary og Phil Neville léku allir með úrvalsliðinu í gær, en þeir spiluðu á sínum tíma saman í unglingaliði Manchester United og unnu síðar fjölda titla með aðalliði félagsins. David Beckham er einnig hluti af þessum hóp, en hann lék ekki með í gær.

Fleiri þekktir kappar léku með úrvalsliðinu í gær. Þar má m.a. nefna Raimond van der Gouw, Mikael Silvestre, David May og QuintonFurtone, fyrrverandi leikmenn Manchester United, grínistann Jack Whitehall og krikket-leikmennina Michael Vaughan og Steve Harmison.

Auk þess léku fyrrum samherjar Giggs og félaga í unglingaliði United, Robbie Savage, Raphael Burke, John O'Kane og Ben Thornley, með úrvalsliðinu í gær.

Þeir áttu hins vegar ekki mikla möguleika gegn Salford, sem er utandeildarlið sem Giggs, Scholes, Butt og Neville-bræðurnir festu kaup á í fyrra.

Giggs stýrði Manchester United undir lok síðustu leiktíðar, en hann fékk Butt, Scholes og Phil Neville sér til aðstoðar.

Síðasta haust var heimildarmynd um umræddan hóp, The Class of '92, frumsýnd, en hún fékk fínar viðtökur.


Tengdar fréttir

Ég hataði Gary Neville þegar ég hitti hann fyrst

Nicky Butt lýsti fyrstu kynnum sínum af Gary Neville í skemmtilegu viðtali við Ben Smith hjá BBC en Smith ræddi við 1992-árganginn í tilefni af frumsýningu heimildarmyndarinnar "The Class of '92."

Beckham og 1992-strákarnir á rauða dreglinum

David Beckham var mættur á frumsýningu heimildarmyndarinnar "Class of 92" í gær ásamt gömlu liðsfélögum sínum þeim Paul Scholes, Nicky Butt, Phil Neville, Gary Neville og Ryan Giggs. Giggs er sá eini af þeim sem er enn að spila.

Búið að gera mynd um 92-árganginn hjá Man. Utd

Búið er að gera heimildarmynd um leikmennina sem breyttu Man. Utd undir lok síðustu aldar. Myndin heitir "The Class of '92" og er um þá David Beckham, Ryan Giggs, Nicky Butt, Paul Scholes og Neville-bræðurna Gary og Phil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×