Enski boltinn

Mourinho: Falcao á ekki að spila í Mónakó

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur gefið til kynna að hann vilji fá Kólumbíumanninn Falcao til að leysa framherjavandræði liðsins.

Sóknarmenn Chelsea hafa ekki komist á almennilegt flug á tímabilinu í vetur en af þeim er Samuel Eto'o markahæstur með sex mörk. Fernando Torres hefur skorað fjögur, Andre Schürrle þrjú og Demba Ba eitt.

„Ég er með lið en engan framherja,“ var haft eftir Mourinho í fjölmiðlum eftir sigur liðsins á Everton í gær. „Falcao er ekki með lið. Leikmaður eins og hann á ekki að spila fyrir framan þrjú þúsund manns. Maður fer til félags eins og Monaco þegar ferillinn er á enda.“

Falcao hafði skorað níu mörk í sautján leikjum með franska liðinu þegar hann sleit krossband í hné. Hann verður af þeim sökum frá út tímabilið.

Mourinho útilokaði þó að fá Zlatan Ibrahimovic frá PSG. „Hann er ánægður í París. Það veit ég vegna þess að við erum vinir og höldum sambandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×