Leyniþjónustan brást skyldum sínum Freyr Bjarnason skrifar 1. október 2014 07:00 Julia Pierson viðurkenndi að leyniþjónustan hefði brugðist skyldum sínum við verndun Hvíta hússins. Fréttablaðið/AP
Julia Pierson, yfirmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna, viðurkenndi að stofnunin hefði brugðist skyldum sínum eftir að maður vopnaður hnífi komst óáreittur inn í Hvíta húsið og hljóp um helming þess áður en hann var yfirbugaður. „Þetta er óásættanlegt,“ sagði Pierson, þegar hún var yfirheyrð af þingnefnd í Washington vegna atviksins. Hún lofaði því að fara yfir starfshætti stofnunarinnar og hvers vegna henni tókst ekki að stöðva manninn fyrr. Pierson gekkst við ábyrgð á því sem gerðist og sagði að þetta myndi ekki gerast aftur. Hún hefur verið harðlega gagnrýnd vegna atviksins. „Ég vildi óska að þú hefðir verndað Hvíta húsið eins og þú varðir mannorð þitt hérna í dag,“ sagði fulltrúi demókrata við yfirheyrsluna. Skömmu áður en hinn vopnaði maður stökk yfir girðinguna við Hvíta húsið báru tveir einkennisklæddir starfsmenn leyniþjónustunnar kennsl á hann frá fyrri samskiptum sínum við hann. Þeir töluðu samt ekkert við hann og létu yfirmenn sína ekki vita af því að maðurinn væri á svæðinu. Hann hafði verið stöðvaður 25. ágúst með litla exi skammt frá girðingu Hvíta hússins. Barack Obama Bandaríkjaforseti var ekki í Hvíta húsinu, þegar maðurinn ruddist þangað inn og ekki heldur fjölskylda hans.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira