Blind gæti verið lengi frá - tíu meiddir hjá United Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. nóvember 2014 08:00 Daley Blind gæti verið frá í allt að tvo mánuði. vísir/getty
Daley Blind, leikmaður Manchester United, meiddist illa í 6-0 sigri Hollands gegn Lettlandi í undankeppni EM 2016 í gær og gæti verið lengi frá. Hann fer í myndatöku í dag og kemur þá í ljós hversu alvarleg meiðslin eru. „Ég er frekar neikvæður. Ég held að liðbandið í hnénu sé farið hjá honum. Það gæti verið slitið,“ sagði Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Hollands eftir leikinn. Sjálfur skrifaði Blind á Instagram-síðu sína: „Stoltur af 25 leikjum fyrir Holland en er í rusli vegna meiðslanna. Ég mun vera jákvæður og koma sterkari til baka.“ Blind, sem United keypti frá PSV Eindhoven í sumar fyrir 14 milljónir punda, hefur spilað átta leiki fyrir liðið og staðið sig ágætlega. Hann hefur mest megnis spilað á miðjunni en leysti af í miðvarðarstöðunni gegn Crystal Palace um síðustu helgi. Meiðslavandræði United eru engu lagi lík, en Louis van Gaal gæti einnig verið án markvarðarins David De Gea sem fór úr lið á fingri á æfingu með Spáni á föstudaginn. Þá dró Michael Carrick sig úr enska hópnum vegna meiðsla í nára. Þessi meiðsli bætast ofan önnur meiðsli manna á borð við Phil Jones, Marcos Rojo, Chris Smalling, Radamel Falcao, Ashley Young og Rafael. Manchester United mætir Arsenal á útivelli þegar enska úrvalsdeildin hefst aftur um næstu helgi eftir landsleikjafrí.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hollendingar í stuði gegn Lettum | Sjáðu glæsimark Robben Hollendingar völtuðu yfir Letta í riðli okkar Íslendinga. 16. nóvember 2014 00:01 Mest lesið Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Frá út leiktíðina og missir af HM Enski boltinn Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Sjá meira
Hollendingar í stuði gegn Lettum | Sjáðu glæsimark Robben Hollendingar völtuðu yfir Letta í riðli okkar Íslendinga. 16. nóvember 2014 00:01