Pardew: Áttum að fá meira út úr þessu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. ágúst 2014 15:15 Stjórarnir að kalla skipanir vísir/getty
Alan Pardew knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle segir lið sitt hafa átt meira en eitt stig skilið þegar Newcastle og Aston Villa skildu jöfn í Birmingham fyrr í dag. Það voru ekki mörg færi í leiknum en Newcastle fékk bestu færi leiksins í seinni hálfleik en Brad Guzan stóð fyrir sínu í marki Aston Villa. „Já ég held það,“ sagði Pardew aðspurður hvort Newcastle hafi gert nóg til að vinna leikinn. „Mér fannst við hafa góða stjórn á leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik. Við vorum mikið betri en fundum ekki augnablikið. „Þegar þú færð marga nýja sóknarmenn sem vilja allir gera vel. Þú gast séð á Remy (Cabella) að hann var að reyna of mikið til að skapa augnablikið. Þú getur ekki gert það í fótbolta, augnablikið þarf að koma til þín. „Ég er ánægður með liðið. Það er góður kjarni í liðinu. Við vitum að við þurfum að ógna með mörkum því það mun tryggja okkur sigra. Það var margt jákvætt í okkar leik en við höfum ekki enn skorað og það liggur á okkur,“ sagði Pardew.Paul Lambert stjóri Aston Villa er ánægður með byrjunina á tímabilinu. Liðið hefur haldið hreinu í báðum leikjum sínum og er með fjögur stig. „Mér fannst við frábærir í fyrri hálfleik. Við fengum góð færi. Við vorum aðeins betri í fyrri hálfleik en Newcastle fékk færi undir lokin,“ sagði Paul Lambert eftir leikinn. „Þetta er leikur sem við hefðum tapað á síðustu leiktíð. Að halda hreinu í tveimur leikjum og fá fjögur stig, það er frábær byrjun fyrir okkur. „Það afskrifuðu okkur margir fyrir tímabilið en við höfum leikið vel og getum vonandi byggt á því,“ sagði Lambert.
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira