Arsenal upp í fjórða sætið | Sjáðu markið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2014 00:01
Arsenal bar sigurorð af West Bromwich Albion á The Hawthorns í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Staðan var markalaus í leikhléi, en leikmenn Arsenal voru líklegri til að skora í fyrri hálfleik. Besta færið átti Danny Welbeck þegar hann komst einn gegn Ben Foster sem varði frá samherja sínum í enska landsliðinu. Oliver Giroud var einnig nálægt því að skora eftir mistök Fosters og þá átti Aaron Ramsey skot rétt framhjá. West Brom ógnaði sama og ekki neitt, en liðið átti ekki skot að marki Arsenal í fyrri hálfleik. Welbeck braut loks ísinn þegar hann skoraði með föstum skalla á 60. mínútu eftir frábæran undirbúning og fyrirgjöf Santis Cazorla sem spilaði manna best í dag. Þetta var þriðja mark Welbecks í deildinni og hans fyrsta fyrir Arsenal í sex leikjum. Alan Irvine, þjálfari West Brom, gerði hvað hann gat og skipti þremur varamönnum inn á eftir mark Welbecks. Heimamenn ógnuðu þó lítið fyrr en á 81. mínútu þegar Saido Berahino átti skalla í slána eftir fyrirgjöf varamannsins Cristians Gamboa. Craig Gardner átti einnig gott skot framhjá skömmu fyrir leikslok, en nær komst West Brom ekki og Arsenal fagnaði mikilvægum sigri. Liðið er nú í 4. sæti með 20 stig, en West Brom situr í því 13. með 13 stig.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira