Eðlilegt að Di María hafi tekið smá dýfu Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. nóvember 2014 08:00 Ángel di María byrjaði frábærlega hjá Manchester United. vísir/getty
Gerardo „Tata“ Martino, landsliðsþjálfara Argentínu, finnst Ángel Di María, leikmaður Manchester United, fá of harða gagnrýni fyrir frammistöðu sína með enska liðinu í síðustu leikjum. Di María byrjaði frábærlega á Old Trafford, en hann skoraði þrjú mörk og lagði upp fjögur í fyrstu sex leikjum sínum með liðinu eftir komuna frá Real Madrid. Hann hefur síðan þá tekið smá dýfu. Martino fannst byrjun hans í raun frekar óeðlileg og líkjast frekar leikmanni sem hefur verið lengi hjá liðinu en ekki leikmanni sem var að koma í nýja deild. „Byrjun hans var mögnuð og sérstaklega í ljósi þess að hann er að venjast nýrri deild, nýju liði, nýjum samherjum og nýrri spilamennsku. Mér finnst frammistaða hans í síðustu leikjum í raun eðlilegri fyrir leikmann sem er að koma til nýs liðs,“ sagði Martino fyrir leik Portúgal og Argentínu sem fram fer á Old Trafford í kvöld. Martino fór fögrum orðum um Di María sem hann segir geta spilað margar stöður. Hann kynntist því þegar hann stýrði Barcelona á síðustu leiktíð í El Clásico-leikjunum gegn Real Madrid. „Maður þarf bara að horfa nokkrar leiktíðir aftur í tímann þegar hann var að spila á hægri kantinum hjá Real Madrid. Svo á síðustu leiktíð var hann að spila vinstra megin inn á miðjunni í frjálsara hlutverki,“ segir Gerardo Martino. „Á HM stóð hann sig svo frábærlega á vinstri kantinum þannig það skiptir í raun ekki máli hvar hann spilar. Hann getur aðlagast hvaða stöðu sem er.“
Enski boltinn Mest lesið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira