Lögmaður Man. United hjálpar Solskjær í deilunni við Cardiff Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2014 14:30 Ole Gunnar Solskjær. Vísir/Getty
Það hefur ekki heyrst mikið frá Norðmanninum Ole Gunnar Solskjær síðan að hann hætti sem knattspyrnustjóri velska félagsins Cardiff City um miðjan september. Hvorki Ole Gunnar Solskjær eða eigandinn Vincent Tan hafa gefið færi á viðtali um endalok Norðmannsins en nú er í gær kom fram í norskum fjölmiðlum að báðir aðilar hafa staðið í deilum á bak við tjöldin undanfarnar sex vikur. Solskjær vill fá bætur fyrir töpuð laun út þetta tímabil og sú upphæð gæti verið meira 500 milljónir íslenskra króna samkvæmt heimildum norskra fjölmiðla. Það gekk ekki vel í stjóratíð Ole Gunnar Solskjær hjá Cardiff en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni og byrjaði síðan illa í ensku b-deildinni. Ole Gunnar Solskjær hefur öflugan mann í sínu horni og það gæti komið sér vel ef málið endar fyrir dómi. Hans lögmaður er Matthew Bennett sem sérhæfir sig í málum tengdum íþróttum og hefur starfað fyrir mörg félög og þar á meðal fyrir Manchester United. Bennett staðfesti það við Dagbladet að hann væri lögmaður Solskjær. Solskjær naut aðstoðar Matthew Bennett þegar hann samdi við Cardiff City á sínum tíma og Bennett ætti því að vera með það á hreinu hvar Cardiff er ekki að standa við sitt.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira