QPR og Man City skildu jöfn í ótrúlegum leik | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2014 00:01 Mike Dean hafði í nógu að snúast í dag. Vísir/Getty
Það er óhætt að segja að framherjarnir Charlie Austin og Sergio Aguero hafi verið í aðalhlutverkum þegar nýliðar QPR og Englandsmeistarar Manchester City skildu jöfn 2-2 í frábærum leik á Loftus Road. Austin kom QPR yfir á 21. mínútu eftir að hafa fengið boltann frá Síle-manninum Mauricio Isla, en nokkrum mínútum áður hafði Mike Dean, dómari leiksins, dæmt tvö mörk af Austin. Þá var komið að Aguero, en hann jafnaði metin á 32. mínútu eftir frábært einstaklingsframtak. Einhver áhöld voru um hvort markið hefði átt að standa, en Argentínumaðurinn virtist leggja boltann fyrir sig með höndinni. Fjörið hélt áfram í seinni hálfleik, en áhorfendur þurftu þó að bíða fram á 76. mínútu eftir næsta marki. Það gerði Martin Demichelis, sem stangaði boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Austin. Englandsmeistararnir gáfu í kjölfarið og QPR-menn björguðu tvisvar á línu með skömmu millibili. Þeir komu þó engum vörnum við þegar Aguero skoraði sitt annað mark og jafnaði metin. Þetta var 12. mark Argentínumannsins í deildinni í vetur. Fleiri urðu mörkin ekki og liðin skiptu stigunum á milli sín. City er nú átta stigum á eftir Chelsea í 3. sæti deildarinnar. QPR er hins vegar enn í fallsæti með átta stig.Charlie Austin 1-0 Sergio Aguero 1-1 Martin Demichelis 2-1 Aguero 2-2
Enski boltinn Mest lesið Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti „Við áttum þetta skilið“ Handbolti Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Fótbolti Glasner gæti kvatt Palace með titli en Rayo Vallecano stendur í veginum Fótbolti Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Fleiri fréttir Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Sjá meira